blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

11.08.2004

Lifi Pollýanna og fock it!

Jæja! Eins og við höfum rætt svo oft eru það mótbárunar og hæðirnar sem gera okkur sterkari og vitrari! En hjá sumum okkar er þetta bara eðlilegt líf! eða svo virðist vera. Ekkert fútt nema það sé eitthvað í hverjum mánuði eða hverri viku sem fer til fjandans! Maður er vanur þvi að fá nett taugaáfall og rétta úr bakinu... og hugsa.. fock it! ég get gert þetta! ég get allt! Svo heldur maður áfram! ER maður að breytast í Pollýönnu? Er það ekki möguleiki að einn daginn brotni maður bara og geti ekki meria? Í þetta skiptið var tölvunni minni stolið aftur! Það var brotist inn í vinnuna og henni kippt með! Eftir að nett áfall hefur farið um mann.. verður maður að finna eitthvað jákvætt til að missa sig ekki! ég missti ekki jafn mikið af gögnum og síðast! það er gott ekki satt? ég get þvi miður ekki fundið neitt annað! ég upplifi síðasta skipti algerlega aftur, er reið, svekkt, hrædd og hjartað er búið að vera á milljón.. og titra.. engin leið að finna balance eins og er! Finn það hvað maður er einn, vantar að lata halda utan um sig og finna öryggi en ... sú hugsun fer einnig alveg með mig! hvers vegna í fjandanum er maður ekki nægur sjálfum sér!! En það þýðir víst lítið að væla yfir þessu frekar en öðru! Bara Lifi Pollýannna og fock it!!!!!!

1 Comments:

Blogger Kiddý said...

sael astin min! eg veit ekki hvernig eg a ad syna ther studning thar sem eg er svona langt i burtu. En eg get sagt ther thad ad thu ert sjalfri ther nog. Thi ad thu thurfir einhvern til ad halda utan um thig thydir thad ekki ad thu sert ekki nogu sterk. Allir thurfa einhvern til ad halda utan um sig thegar lifid tekur a. ALLIR! Eg maeli med ad thu sert mikid med vinum thinum i sma tima og fari ad rexa og kvarta og grenja og allt thetta sem folk gerir til ad losa ut. eg samhryggist med tolvuna en thu meikar thad alvegh thu ert Olsari. MUNDU hver thu ert!!!.....he he he. Sendu mer linu ef eg get eitthvad gert. Elska thig i taettlur. Kiddy

3:54 PM

 

Post a Comment

<< Home